Lífsgæði í hjarta Hafnarfjarðar

Strandgata 26

Upplifðu einstök lífsgæði í hjarta Hafnarfjarðar þar sem 31 nútímaleg íbúð með vönduðum innréttingum og glæsilegu útsýni yfir höfnina eða gamla bæinn. Íbúðirnar rísa yfir Firði þar sem verslanir, veitingastaðir og fjölbreytt þjónusta eru undir sama þaki, með líflegan miðbæ og fallegt umhverfi í næsta nágrenni.

Opið hús

Föstudaginn 23. Október kl. 13:15 - 13:45  |    Ás fasteignasala

Opið hús

Sunnudaginn 25. Október
kl. 13:15 - 13:45
Ás fasteignasala

Íbúðir

31 íbúð

2 lyftur

53-208 m2

Bílakjallari

Íbúðirnar eru á 2.–7. hæð, en engin íbúð er eins. Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar, með gólfsíðum gluggum sem bjóða upp á stórkostlegt útsýni. Tvær lyftur tryggja greiðar samgöngur milli hæða og lágmarka bið á álagstímum.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá VOKE-III og endurspegla tvö glæsileg efnisþemu: reykt eikarútlit á 2.–4. hæð og ameríska hnotu á 5.–7. hæð.

 

504

Helstu upplýsingar:

Miðbær Hafnarfjarðar

Strandgata 26 er staðsett í hjarta Hafnarfjarðar, þar sem fjölbreytt þjónusta, verslanir og veitingastaðir eru innan húss eða í næsta nágrenni. Hér er stutt í líflegt mannlíf, menningu og viðburði, auk fallegra útivistarsvæða og náttúru.

Veitingastaðir

Í Firði er fjölbreytt úrval veitingastaða og kaffihúsa þar sem hægt er að njóta góðra veitinga við öll tilefni. Í miðbæ Hafnarfjarðar er jafnframt fjöldi veitingastaða í þægilegu göngufæri frá íbúðunum, allt frá notalegum kaffihúsum til glæsilegra veitingastaða.

Þjónusta

Í Firði er fjölbreytt þjónusta undir sama þaki, meðal annars apótek, heilsugæsla, snyrtistofa, hárgreiðslustofa og kírópraktorstofa, auk póstboxa og annarrar þægilegrar þjónustu. Í miðbæ Hafnarfjarðar er jafnframt fjölbreytt úrval þjónustu í göngufæri og góðar almenningssamgöngur sem auðvelda ferðir um höfuðborgarsvæðið.

Verslanir

Í Firði er fjölbreytt úrval verslana þar sem finna má meðal annars tískufatnað, skó, snyrtivörur, gjafavöru, leikföng og ýmsar daglegar nauðsynjar. Í næsta nágrenni, meðfram Strandgötunni og víðar í miðbæ Hafnarfjarðar, má einnig finna fjölbreyttar sérverslanir og litlar, heillandi verslanir sem bjóða upp á einstakt vöruúrval og persónulega þjónustu.

Viðburðir

Miðbær Hafnarfjarðar iðar af lífi allt árið um kring og býður upp á fjölbreytta menningarviðburði og skemmtilegar uppákomur. Bæjarbíó er einn af helstu menningarstöðum bæjarins með fjölbreytta dagskrá árið um kring. Þá setja vinsælir árlegir viðburðir á borð við Jóla Hólm og Hjarta Hafnarfjarðar, eina af vinsælustu sumarhátíðum bæjarins, skemmtilegan svip á miðbæjarlífið.

Sjá dagskrá á bæjarbio.is

Bókasafn

Bókasafn Hafnarfjarðar opnaði í glæsilegu húsnæði á 2. hæð í Firði í ágúst 2026. Bókasafnið er lifandi menningar- og samfélagsmiðstöð með fjölbreyttri aðstöðu, þar á meðal barnadeild, hljóðveri, rabbrýmum og fundaraðstöðu. Þar er einnig boðið upp á fjölda viðburða, listasmiðja og námskeiða fyrir alla aldurshópa.

Útivera

Í Hafnarfirði er náttúran aldrei langt undan. Í göngufæri frá íbúðunum má finna Hamarskotslæk, gróðursæla Hellisgerði og Hamarinn sem býður upp á glæsilegt útsýni yfir bæinn og höfnina. Fyrir lengri gönguferðir eru fjölbreyttar gönguleiðir um hraun og fjalllendi í nágrenni Helgafells.

Skoða göngu- og hjólaleiðir í Hafnarfirði

Höfnin

Hafnarfjarðarhöfn er eitt af einkennum bæjarins og á sér ríka sögu sem tengist sjósókn og atvinnulífi. Höfnin setur sterkan svip á miðbæinn þar sem fallegt sjávarútsýni, iðandi hafnarlíf og notalegar gönguleiðir meðfram sjónum skapa einstaka stemningu. Hér er tilvalið að njóta útiveru, fylgjast með skipaumferð og upplifa þá einstöku nálægð við sjóinn sem einkennir Hafnarfjörð.

Thorsplan

Thorsplan er einn af helstu samkomustöðum miðbæjar Hafnarfjarðar þar sem fjölbreyttir viðburðir og líflegt mannlíf skapa skemmtilega stemningu allt árið um kring. Torgið er vettvangur bæjarhátíða, tónleika og ýmissa uppákoma sem laða að sér gesti á öllum aldri. Á aðventunni breytist Thorsplan í sannkallað jólaævintýri þegar hið vinsæla Jólaþorp Hafnarfjarðar opnar með hátíðlegri stemningu, markaðsbásum og fjölbreyttri dagskrá.

Fjörður

Íbúar eru með beint aðgengi inn í Fjörð verslunarmiðstöð þar sem má finna fjölbreyttar verslanir, veitingastaði, bókasafn og alla helstu þjónustu svo sem heilsugæslu, póstbox, snyrtistofu og hárgreiðslustofu.

Hönnunarverðlaun

Nýbygging Fjarðar er hönnuð af ASK Arkitektar og hýsir verslunarkjarna, íbúðir, bókasafn og hótel.

Bygginginvar valin fallegasta nýbygging á höfuðborgarsvæðinu í kosningu Arkitektúruppreisnarinnar árið 2025 og hlaut jafnframt tilnefningu til verðlauna fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

hönnun

byggingin

Íbúðir

Verslunarkjarni

Bókasafn

Hótel

Bílakjallari