Strandgata 26

Sýndaríbúðir

305

Björt og vel skipulögð 54 fm íbúð með rúmgóðum sér afnotareit upp á 24,1 fm.

Íbúðin skiptist í opið og notalegt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu í einu rými og rúmgóðu svefnherbergi.

Baðherbergi er 6,2 fm, vel skipulagt með sturtu og þvottaaðstöðu.

8,8 fm geymsla í kjallara fylgir íbúðinni að auki.

403

Björt og vel skipulögð 54 fm íbúð með rúmgóðum sér afnotareit upp á 24,1 fm.

Íbúðin skiptist í opið og notalegt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu í einu rými og rúmgóðu svefnherbergi.

Baðherbergi er 6,2 fm, vel skipulagt með sturtu og þvottaaðstöðu.

8,8 fm geymsla í kjallara fylgir íbúðinni að auki.

407

Miðbæjar útsýni á 4. hæð.

Birtir fermetrar 126,9 m2, þar af er rúmgóð geymsla upp á 18,7 m2.

Gengið er inn í bjart og rúmgott opið alrými/hol með gólfsíðum bogadregnum gluggum. Nútímalegt og stílhreint eldhús með nægu borðplássi. Út frá alrýminu er gengið út á stórar 34,4 m2 þaksvalir með útsýni yfir gamla bæinn, Hafnarfjörð.

Íbúðin er með tvö rúmgóð svefnherbergi. Hjónaherbergið er með aðgengi að sér baðherbergi en baðherbergin eru tvö í íbúðinni. Þá er þvottaaðstaðan í sér herbergi.

501

Glæsileg og vel skipulögð 115,7 fm íbúð með stórum þaksvölum (38,0 fm) sem býður upp á einstakt útisvæði til að njóta. Íbúðin er björt og rúmgóð með fallegu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eina heild.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi og þvottahús innan íbúðar sem eykur þægindi til muna. Úr alrými er útgengt á stórar þaksvalir.

Auk þess fylgir sér geymsla í kjallara, 10,8 fm, og bílastæði í bílakjallara.

504

Glæsileg 95,5 m² þriggja herbergja íbúð á 5. hæð.

Alrými íbúðarinnar er 42,2 m² og sameinar eldhús, borðstofu og stofu í einu opnu og samfelldu rými. Eldhúsið er glæsilegt og vel útbúið, með vönduðum innréttingum og eldhúseyju sem skapar bæði gott vinnupláss og skemmtilega tengingu við borðstofu og stofu. Stórir gluggar setja sterkan svip á rýmið og bjóða upp á fallegt útsýni yfir nærliggjandi byggð.

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, 12,8 m² og 12,3 m² að stærð. Bæði herbergin eru björt og bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem um er að ræða svefnherbergi, barnaherbergi, gestaherbergi eða heimaskrifstofu.

Baðherbergið er 6,1 m² með vönduðum innréttingum og nútímalegum frágangi.

Úr alrýminu er gengið út á einstaklega rúmgóðar, 23,3 m² þaksvalir sem skapa skemmtilega framlengingu á íbúðinni.

702

Penthouse íbúð á efstu hæð.

Glæsileg og vel skipulögð penthouse íbúð á efstu hæð með stórkostlegu útsýni yfir Hafnarfjörð. Íbúðin er 136,1 fm og býður upp á bjart og opið alrými upp á tæplega 64 fm þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman.

Úr alrýminu er gengið út á rúmgóðar 76,1 fm þaksvalir sem bjóða upp á einstaka möguleika.

Íbúðin er með þrjú svefnherbergi, þar af er hjónaherbergið rúmgott með góðu fataherbergi. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni sem eykur þægindi fyrir fjölskyldur eða gesti.

Skipulagið er einstaklega hentugt þar sem svefnrými er aðskilið frá alrými og nýtist því vel bæði fyrir fjölskyldur og þá sem vilja næði.

Með íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílakjallara.

Íbúðin er afhend án gólfefna.

Innréttingar: Amerísk hnota og dekton borðplötur