Strandgata 26
Bílastæði
Um 550 gjaldfrjáls bílastæði eru í kringum íbúðaturninn og því gott aðgengi að húsinu fyrir bæði íbúa og gesti. Einnig er hægt að kaupa einkabílastæði í bílakjallara, en bílastæði fylgja ákveðnum íbúðum. Almenningssamgöngur stoppa við húsið og bjóða upp á góðar tengingar um höfuðborgarsvæðið.
Bílastæði
Um 550 gjaldfrjáls bílastæði eru í miðbæ Hafnarfjarðar, meðtöldum bílakjallara Fjarðar.
Einkabílastæði í bílakjallara
Íbúum gefst kostur á að kaupa einkabílastæði í bílakjallara íbúaturnsins, þar sem alls eru 32 bílastæði. Aðkoma að bílakjallaranum er í gegnum bílakjallara Fjarðar, en bílakjallari íbúaturnsins er eingöngu ætlaður íbúum og er lokaður almenningi.
Hleðslustöðvar
Hleðslustöðvar eru frá ON og við hvert bílastæði er gert ráð fyrir tengibúnaði fyrir hleðslu rafbíla.