Strandgata 26
Verkefnið
Strandgatan á sér langa sögu sem aðal verslunargata Hafnarfjarðar og hefur í gegnum tíðina iðað af lífi. Síðar eignuðust Hafnfirðingar eigin verslunarmiðstöð, Fjörð og hefur nýbyggingin tengd þessi tvö verslunarsvæði betur saman með millibyggingu frá Strandgötu beint inn í Fjörð.
Byggingareiturinn liggur að Strandgötu 26-30. Á sínum tíma var búið að skipuleggja háhýsi á reitnum en vegna formgalla fór það aldrei í gegn.
Reiturinn stóð því auður í um 25 ár og þegar farið var að huga að uppbyggingu var það að stóru leiti í höndum lóðarhafa að sjá um skipulagið.
Uppbyggingin hefur skilað Hafnfirðingum glæsilegu íbúðahóteli, fjölda íbúða, stækkunar á bókasafni með nýjum áherslum ásamt nýju verslunarhúsnæði þar sem góð tenging er á milli Strandgötunnar og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar.
Heildar stærð Fjarðar er því um 21.000 m2
Strandgatan áður fyrr
Fyrr á tímum voru á reitnum Kaupfélag Hafnarfjarðar sem var staðsett við Strandgötu 28 og Hafnarfjarðarbíó við Strandgötu 30.
Hafnarfjarðarbíó var stofnað 1914 og var fyrst á Kirkjuvegi í Hafnarfirði. Stofnandi þess, Árni Þorsteinsson keypti síðan 1936 hús sem stóð á lóðinni þar sem meðal annars hafði verið rekið Hótel Drífandi. Framanaf var rekstur bíósins frekar þungur í vöfum, en með komu breska hernámsliðsins og síðar Bandaríkjamanna í seinni heimstyrjöldinni vænkaði hagur kvikmyndahússins og hóf Árni að byggja á lóðinni uppúr 1940. Bíóhúsið komst svo í gagnið 1943 en eftir daga Árna tók Níels sonur hans við rekstrinum.
Á tímabili voru rekin tvö bíó við Strandgötuna. En við vinsældir vídeóspólunnar fór rekstrarumhverfið harðnandi og fór svo að Hafnarfjarðarbíó hætti rekstri 1988. Um tíma var rekinn skemmtistaður í húsinu en það var að lokum rifið 2001.
Upphafið
Guðmundur Bjarni Harðarson tók við sem framkvæmdastjóri Fjarðar árið 2013 og áttaði sig fljótt á því að verslunarkjarnann skorti skýra stefnu og framtíðarsýn.
Í kjölfarið var Fasteigna- og þróunarfélagið 220 Fjörður stofnað með þann tilgang að færa eignarhald á rýmum verslunarmiðstöðvarinnar á eina hendi. Í dag á 220 Fjörður ehf 96% hluta í verslunarkjarnanum og stóran hluta norður- og suðurturns.
Eftir að hafa ferðast víða um heim fékk Guðmundur þá hugmynd að stækka verslunarkjarnann og opna nútímalegt bókasafn/margmiðlunarsetur þar sem væri vettvangur fyrir íbúa að hittast og/eða fræðast í nútímalegu umhverfi með góðri hljóðvist o.fl. Endanlegt skipulag á ónýttri lóð að Strandgötu 26-28 vará þann veginn að ákveðið var að stækka verslunarkjarnann í átt að Strandgötu og á 2. hæð kjarnans væri bókasafnið, þjónustutengd starfsemi og veitingastaður með útsýni yfir höfnina. Þessu til viðbótar voru byggðar 31 lúxus íbúðir ofan á verslunarkjarnan og hótelíbúðir í annari byggingu sem snýr að Strandgötu.
Fyrsta skóflustungan
Um 20 ár eru liðin síðan þessi hús voru rifin og reiturinn staðið auður síðan þá. Eftir margra ára undirbúning hófst uppbygging Fjarðar 28.nóvember 2022 með skóflustungu. Eigendur 220 Fjarðar, Haraldur R. Jónsson og Benedikt Steingrímsson ásamt Rósa Guðbjartsdóttir þáverandi bæjarstjóra tóku fyrstu skóflustunguna.